fáðu slysið bætt að fullu með okkar aðstoð!
Átt þú rétt á slysa- eða skaðabótum
Hafðu samband við okkur og kannaðu hver þinn réttur er.
Um Meiðsli.is
Meiðsli.is er í eigu FBG ráðgjafar ehf. Við sérhæfum okkur í lögfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga og lögaðila á nokkrum réttarsviðum. Þeirra á meðal eru Persónuverndarréttur, Sifja- og erfðaréttur, Vinnuréttur, Stjórnsýsluréttur, Félagaréttur, Fasteignaréttur, Skaðabótaréttur og Skattaréttur.
Við leggjum mikla áherslu á fagleg og vönduð vinnubrögð til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar. Lögfræðingar okkar annast málið þitt frá upphafi til enda. Áhersla er lögð á að upplýsa viðskiptavini reglulega um stöðu málsins.
Ef engar bætur fást greiddar, er ekkert rukkað fyrir þá lögfræðiþjónustu sem veitt hefur verið. Þér er því óhætt að hafa samband og kanna réttarstöðu þína, fyrsta viðtal er ávallt án endurgjalds.
Smelltu á hlekkinn hér að neðan og njóttu náttúrufegurðar og fuglasöngs þar til við höfum búið til skýringarmyndband um ferlið við að sækja sér bætur eftir slys.
Þjónustan okkar
Umferðarslys
Lentirðu í umferðarslysi? Mjög mikilvægt er að leita til lögfræðings til þess að kanna hver þinn réttur til bóta er. Hafðu samband við okkur og við förum yfir málið með þér og könnum hvort bótaréttur sé fyrir hendi.
Vinnuslys
Því miður eru vinnuslys allt of algeng. Þú kannt að eiga rétt til bóta úr launþegatryggingu, slysatryggingu og ábyrgðartryggingu. Hafðu samband við okkur og við förum yfir málið með þér og könnum hvort bótaréttur sé fyrir hendi.
Sjóslys
Allir sem lenda í slysi við störf á sjó eiga rétt til bóta vegna tjónsins eftir ákvæðum skaðabótalaga. Hafðu samband við okkur og við förum yfir málið með þér.
Frítímaslys
Til frítímaslysa teljast margvísleg óhöpp, t.d. tjón eftir fall eða slys við íþróttaiðkun. Hafðu samband við okkur og við förum yfir málið með þér og könnum hvort bótaréttur sé fyrir hendi.
Líkamsárás
Mikilvægt er að strax sé lögð fram einkaréttarleg krafa til lögreglu til þess að réttur þinn til bóta sé tryggður. Hafðu samband við okkur og við förum yfir málið með þér og könnum hvort bótaréttur sé fyrir hendi.
Annað tjón
Aðalatriðið er að hafa samband við lögfræðing fyrr heldur en síðar. Við förum yfir málið með þér og könnum í framhaldinu hvort bótaréttur sé til staðar.
Númer 1
Það fyrsta sem þarf að gera er að tilkynna slysið, ef það hefur ekki þegar verið gert, til allra aðila sem kunna að vera bótaskyldir vegna slyssins.
Númer 2
Við öflum allra gagna vegna málsins þíns. Slíkt getur tekið töluverðan tíma, jafnvel allt að ári ef þú ert að leita til okkar strax eftir að slysið hefur átt sér stað.
Númer 3
Þegar stöðugleikapunkti hefur verið náð, tekur við matsferli sem framkvæmt er af lækni og lögfræðingi. Þeir meta það líkamstjón sem þú hefur orðið fyrir vegna slyssins og hverjar afleiðingar slyssins hafa verið fram að því og líkurnar á því að slysið hafi afleiðingar fyrir þig til framtíðar.
Númer 4
Þegar matsferlinu er lokið, liggur fyrir matsgerð í málinu. Um er að ræða grundvallar málsgagn sem byggt er á við kröfugerð í málinu. Í flestum tilvikum lýkur málinu með greiðslu bóta en sum mál þurfa að fara fyrir dómstóla.
ALGENGAR SPURNINGAR UM SKAÐABÓTARÉTT
Fáðu svör við algengustu spurningunum er snerta slysa- og skaðabætur.
Hvað ætti ég að gera strax eftir slys?
Ávallt þarf að tryggja öryggi og fyrirbyggja frekari slys. Í framhaldinu er gott að leita læknisaðstoðar og skrifa hjá sér helstu málavexti. Þá er gott að hafa samband við lögfræðing sem leiðir þig áfram í gegnum næstu skref. Í upphafi er skrifað undir umboð, sem gefur okkur heimild til gagnaöflunar. Í framhaldinu er réttur þinn til bóta metinn í samráði við þig og ákveðið hvort málið fari á næsta stig.
Ég lenti í slysi. Á ég rétt á bótum?
Við skoðum hvert og eitt tilvik með tilliti til þess hvort þú eigir rétt á bótum. Fyrsta viðtal hjá okkur er frítt, einmitt til þess að fara yfir málavexti, fá umboð til frekari gagnaöflunar svo hægt sé að leggja mat á þinn bótarétt í málinu. Í framhaldinu er síðan tekin ákvörðun um næstu skref.
Tekur það mörg ár að fá bætur?
Segja má að ferlið sé allt frá rúmlega ári til nokkurra ára, frá slysi og þar til bætur eru greiddar út. Þegar stöðugleikapunkti hefur verið náð, ári eftir að slysið átti sér stað, er gerð krafa um greiðslu bóta. Margvíslegar breytur eru á því hve langan tíma það tekur að fá kröfuna greidda.
Hvað hef ég langan tíma til þess að sækja bætur?
Það er gríðarlega mikilvægt að leita strax til lögfræðings, eftir að slys hefur átt sér stað. Almenna fyrningarreglan í íslenskum skaðabótarétti, sbr. 3. gr. Skaðabótalaga nr. 50/1993, er að krafa um skaðabætur vegna líkamstjóns fyrnist á fjórum árum frá þeim degi er tjónþoli fékk vitneskju um eða mátti vita um tjónið og hver ber ábyrgð á því. Þá er hámarksfrestur tíu ár frá því tjón varð, óháð vitneskju.
Ýmsar sérreglur gilda einnig, sem geta haft áhrif, t.d. þarf almennt að sækja um slysabætur frá Sjúkratryggingum Íslands innan tveggja ára frá slysdegi og innan tveggja til fjögurra ára, í tilfelli tryggingafélaga t.d. vegna ábyrgðartryggingar eða slysatryggingar, eftir að tjónþoli vissi eða mátti vita um tjónið og bótaskylduna.
Hvernig hef ég samband við ykkur?
Best er að senda tölvupóst á fbg@fbg.is og lýsa helstu málavöxtum. Þá er einnig hægt að hringja í síma 779-0900 og ræða málið. Tölvupósturinn er samt alltaf bestur í upphafi. Í framhaldinu ákveðum við fundartíma og þú kemur á skrifstofu okkar til þess að fara yfir málið og skrifa undir umboð.
Hvað gerist ef við ákveðum að gera kröfu og henni er synjað?
Aðalatriðið er að hafa í huga að ef engar bætur fást greiddar vegna kröfunnar, þá er enginn frekari kostnaður fyrir þig nema þú ákveðir að taka málið lengra þ.e.a.s. með því að höfða mál fyrir almennum dómstólum. Við aðstoðum þig við að finna bestu lausnina í slíkri stöðu.
Hafðu samband strax í dag til þess að kanna þinn rétt til bóta!
Hafðu samband við okkur strax til þess að bóka viðtal, án kostnaðar fyrir þig, til þess að kanna hvernig Meiðsli.is getur aðstoðað þig við að fá bætur vegna bótakröfu þinnar. Fylltu út formið hér að neðan til þess að bóka tíma.
Fáðu lögfræðiráðgjöf strax í dag!
Hefur þú orðið fyrir slysi nýlega? Þá er gott að leita álits lögfræðings á möguleikum þínum til bóta. Hafðu samband við okkur hjá Meiðsli.is og fáðu sérfræðiaðstoð við að meta möguleika þína á greiðslu bóta. Við fylgjum þér í gegnum ferlið og gætum hagsmuna þinna í hvívetna. Engar bætur = enginn lögfræðikostnaður fyrir þig.
skrifstofutímar
Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.
Bóka þarf tíma með tölvupósti.
FBG ráðgjöf ehf.
kt.: 450917-0440
Vsk.: 129215
Hafa samband
Heimilisfang: Súðarvogur 2E.
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is